Ég ætla bara líka að setja þetta hérna inn...nenni ekki að senda
ykkur sem senduð mér þetta í email
1.HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
Svona rúmlega sjö en um helgar sef ég til svona 1
2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI
ÞAÐ?
Juliu Roberts eða Kevin Kostner 
3. GULL EÐA SILFUR
Silfur
4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Fun with Dick and Jane með Jim Carrey, helvíti fyndin!
5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?
Desperate housewifes (missi ekki af þætti), The Oc, nágrannar,
glæstar (stundum), og One tree hill
6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?
Drykkjarjógúrt, stundum hafragraut ef ég nenni
7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐIN STÓR?
Ég stefni á að klára stúdentinn á næstu 2 árum og svo ætla ég að
reyna að fá mér skemmtilega vinnu sem er vel borguð, kannski mennta
mig meira. Svo ætla ég að kaupa mér flott hús og eignast sætustu
börn í heimi 
8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Nei
9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
Margt
10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Hef ekkert, er með nógu langt nafn fyrir að það þarf ekki að vera
miðnafn
11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA
Sveitasæla
12. SUMAR EÐA VETUR?
Sumarið
13. UPPÁHALDS ÍS?
Daimís
14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
Salt
15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
Svartur, brúnn og rauður
16. DRAUMABÍLLINN?
Toyota Land cruser
17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
skinku, ost, kál og grænmetissósu
18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
Ég fór til Danmerkur í 5 daga ferð , sem er alveg ógleymanleg

19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU?
Mér finnst frekt og dónalegt fólk hundleiðinlegt! Maður verður svo
pirraður á að vera í kringum slíkt fólk.
20. UPPÁHALDSBLÓM ?
Rósir
21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU
BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
Ég hugsa að ég myndi ekki segja neinum frá því, bara hafa það fyrir
mig.
22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
Venjulegt vatn
23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
það eru svartar flísar á gólfinu og hvítir veggir
24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
2, einn af bílnum mínum og einn að litluvöllunum
25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
Ég ætla að búa í Grindavík og fara til kanaríeyja í 3 mánuði á
hverju ári
26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
Það veit ég ekki, hvað er jöggla??
27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
laugardagur og sunnudagur
28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
Rauðvín
29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Ég bara man það ekki..
30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei
31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?
Skiptir engu, bara að barnið verði heilbrigt
32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í FÍLING?
Góð tónlist og vinkonurnar
33. ERTU FEMINSTI?
Nei
34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU:
Augun og brosið
35. ELSKARÐU EINHVERN?
Já fjölskylduna mína, vinkonurnar og svo hann Gunnar Sigursvein

36.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR ÞETTA:
Það eru svo margir búnir að senda mér þetta, en þið sem senduð eruð
öll æðisleg.